28.9.08

Sehr gut :) Nei, ok, Berlínarmaraþon :)

Fréttaritari Eyrarskokks í Berlín liggur uppi í rúmi með tölvuna á maganum klædd í hlaupaföðurland og bloggar. Heilræði dagsisns er í boði tveggja danskra kvenna sem undirrituð hleraði í neðanjarðarlestinni tala um hvernig væri væri að sofa nóttina eftir maraþon. Maður á að sofa í síðu þröngu hlaupabuxunum, því með því fær maður ókeypis ómeðvitað nudd á auma kálfa og læri. Sniðugt.

Annars er allt gott að frétta frá Berlín, við erum aðallega í skýjunum eftir alveg frábærlega skemmtilegt hlaup. Börkur er búinn að kjafta frá einhverjum af tímunum okkar sem við erum sjálf bara mjög ánægð með. En þeir eru svona í gersamlega tilviljanakenndri röð: Sigurður 4:23:00, Einar 4:05:42, Steini 4:13:20, Vilborg 04:33:54 og Fríða 04:30:26. Fréttaritarinn asnaðist til að gleyma öllum myndavélasnúrum heima þannig að þótt aragrúi af myndum sé til, þá komast þær ekki í tölvuna fyrr en á laugardaginn. En, sem betur fer voru fleiri með myndavélar og þessar myndir eru í boði Margrétar Ólafsdóttur.

Eyrarskokkarar svakalega kúl og töff við Brandenburger Tor ásamt sumum afkvæmum og foreldrum að fara að ferðast með neðanjarðarlestum á leið Á messu til að ná í keppnisgögn. Ef það hefði staðið Í messu, þá hefðum við kannski verið að fara í kirkju, en nei, við vorum bara á leiðinni á gríðarlega stóra hlaupamessu þar sem maður gat slefað yfir hlaupafötum á svipuðu verði og á klakanum og keypt það sem gleymst hafði heima. Og náttúrulega skoðað auglýsingar um öll þessi skemmtilegu maraþon víðsvegar um heiminn sem við ætlum að taka þátt í næsta árið. Já, og hundrað kílómetra hlaupum. Fréttaritarinn sá nú ekki lengri hlaup en það í boði, kannski Hamfarahlaupið verði með bás þarna á næsta ári?

Nú, og Eyrarskokkarar í skýjunum eftir hlaupið. Það sést ekki á myndinni að við snertum ekki jörðina. Sigurður, sendu mér mynd af ykkur feðgum svo þetta geti haft almennilegt heimildagildi. Og..

Sjáið tindinn, þarna fór ég... fjöllunum ungur.. nei, afsakið þetta var MJÖG flatt. Og þegar fréttaritarinn var eitthvað að þvælast við tuttugukílómetramerkið var sagt í hátalara að Haile Gebrselassie hafi slegið heimsmet einu sinni enn rétt í þessu. Það hlýtur að vera þess vegna sem var mynd af honum á verðlaunapeningnum. Já, það er vegna þess að þetta er svo flatt. Að heimsmet eru slegin.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Leiðrétting: það eru ekki sett heimsmet í maraþoni þar sem brautirnar er svo misjafnar. Bara heimsins besti tími!

Nafnlaus sagði...

Alveg magnað hjá ykkur. Til hamingju!
Óskar Þór

jana sagði...

Þið eruð frábær, til hamingju með góðan árangur. Nú er bara að taka stefnuna á uppskeruhátíð um næstu helgi....
kv. Guðrún Gísla.

Valur Þór sagði...

Til hamingju Eyrarskokkarar og aðrir Íslendingar, það hefur verið gaman að fylgjast með ykkur. það er þarna sem fólk nær heimsins besta tíma, kannski ég skrái mig í næsta hlaup????
kv. Valur

Nafnlaus sagði...

Hehe, já Börkur, að sjálfsögðu. Ég verð bara að nota þá afsökun að þetta var sagt á þýsku og ég var að vanda mig við að reyna að hlaupa voða hratt framhjá þessum hátölurum sem ég heyrði þetta í.

Fríða